Góðan daginn
Þorkell @ 10.04 11/11/02
Eftir ítrekað boð frá mínum kæra vini Árna Svani hef ég látið til leiðast og hafið annálaskrif. Ég hef hugsað mér að nota þetta sem n.k. dagbók og skjalasafn fyrir hugmyndir og vangaveltur. Reyndar hefur mér alltaf gengið erfiðlega að halda dagbók. Ég var svo hræddur um að einhver læsi skrif mín og þorði því aldrei að skrá neitt persónulegt. Reyndar þróaði ég leynitákn en það er takmarkað hvað hægt er að tjá sig með slíku. Niðurstaða mín er því sú að best er að skrifa svona bók með það í huga að aðrir muni lesa hana. Og hvar er betra að gera það en einmitt fyrir augsýn alls mannkynsins?
Árni Svanur @ 11/11/2002 11.31
Velkominn í hóp annálaritara. Það er fengur í þér