þorkell.annáll.is

AnnállÁhorfGeymslanHugrenningarKvikmyndirPrívatSkrifTrúmál

« Brúðkaup og ráðstefna · Heim · Mun 11 ára afmælið brátt slá út öllum öðrum áfallaafmælum? »

Nýju fötin keisarans Syndrome

Þorkell @ 02.06 9/8/07

Það eru fáar sögur sem mér er jafn illa við og Nýju fötin keisarans. Ástæðan er sú að ég tel að sagan hafi leitt meira vont af sér en gott. Jú vissulega er gott að benda fólki á að fylgja eigin sannfæringu og láta ekki stjórnast af “viðhorfum” annarra. En vandinn er sá að áherslan er ekki lögð á þann þátt sögunnar heldur á “klæðskerana” sem göbbuðu alla.

Ég er alltaf að rekast á það á netinu að listaverk eru sögð vera nýju fötin keisarans (sérstaklega ef þau eru öðruvísi eða ögrandi) og því haldið fram að listamaðurinn hafi verið að gabba almenning og sitji bak við tjöldin, skellihlæjandi og telji peningana sína.

Ég efast hins vegar um að hvati eða markmið listamannsins skipti nokkru máli. Sjálfur orti ég alveg rosalega “djúp” ljóð þegar ég var ungur. Markmið mitt var ekki að gabba neinn, heldur að orða lífsins dýpstu speki. Síðar meir áttaði ég mig á því hvað þetta var hræðilega hallærislegt og grunnt.

Hins vegar hafa dætur mínar sagt hluti sem hafa verið dýpri en flest ljóð sem ég hef lesið. Þær gerðu sér ekki grein fyrir því að þær voru að segja eitthvað djúpt. Og kannski fannst engum þetta djúpt nema mér. Og það er í góðu lagi því það sem skiptir máli er hvað mér fannst.

Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta er að ég var að horfa á nýjustu mynd David Lynch, INLAND EMPIRE (hreint frábær mynd, að mínu mati). Margir hafa kallað hana nýju fötin keisarans og hafa gagnrýnendur oft haft orð á því að þeir viti ekki hvort Lynch sé alvara eða hvort hann sé að hafa okkur að fífli. Í Empire segir t.d.:

“…It’s never quite clear whether Lynch’s famous eccentricities are all in the name of art, or if some might be a dry joke on us all”

Ég er þeirrar skoðunar að það skipti ekki máli hvert markmið listamannsins er, hvort honum sé alvara eða ekki. Það sem skiptir máli er hvort listaverkið tali til manns eða ekki. Fólk sem hefur áhyggjur af markmiði listamannsins lætur stjórnast jafn mikið af skoðunum annarra og fólkið sem dásamaði “föt” keisarans, af þeirri einföldu ástæðu að það treystir ekki eigin dómgreind eða eigin smekk og þarf einhvern “alvörugefinn listamannastimpil” til að hafa skoðun á verkinu.

Skaði sögunnar er því tvíþættur. Í fyrsta lagi hefur hún fengið fólk til að trúa því að markmið listamanns hafi eitthvað með listaverkið að gera. Og í öðru lagi hefur hún leitt til þess að fólk þorir ekki að njóta listaverka (sérstaklega einhvers sem er öðruvísi eða ögrandi) af ótta við að að verið sé að hafa það að fífli.

url: http://thorkell.annall.is/2007-08-09/nyju-fotin-keisarans-syndrome/

Athugasemdir

Fjöldi 7, nýjasta neðst

Pétur Björgvin @ 9/8/2007 08.55

Finnst þú vera að tala um skaða af ákveðinni útleggingarhefð sögunnar. Sagan sem slík stendur og er fín, en hún er einmitt svona saga sem þarf að fara varlega í allar túlkanir á. Ef þú hlustar á söguna og spyrð sjálfan þig hver þú ert í sögunni getur hún til dæmis nýst vel til sjálfsgagnrýni. En ef hún er túlkuð upp í hendurnar á þér er verið að leggja heimsmynd í hendur þér. Nokkuð sem okkur hættir til að gera, sama hvort við erum að segja sögur Grimms bræðra eða úr Biblíunni.

Árni Svanur @ 9/8/2007 09.08

Mér hefur þótt þessi mynd áhugaverð frá því ég las fyrst um hana. Lynch fetar greinilega ótroðnar slóðir í kvikmyndagerðinni. Líkingin um Nýju fötin keisarans er góð. Nú er bara að krækja sér í eintak og horfa …

Sigga @ 9/8/2007 10.38

Ég held að flestir góðir listamenn vilji að áhorfendur eða lesendur túlki listina hver fyrir sig. Flestum listamönnum er meinilla við að útskýra verkin sín. Hins vegar þykir þeim ekkert að því að aðrir túlki þau. Ég er sammála þér að það skiptir litlu máli hvað listamaðurinn ætlaðist fyrir, verkið sjálft er það sem skiptir máli og hvað þeir sem njóta þess fá út úr því. Ég fann mína eigin nálgun á Inland Empire, veit ekki hvort þú hefur lesið það á Kviku. Ég skrifaði um myndina fyrir Víðsjá í apríl. Hvort einhver annar en ég sér það sama út úr myndinni veit ég ekki :)

Þorkell @ 9/8/2007 13.10

Vandi sögunnar Pétur er sá að það eru vanalega ekki einhverjir að reyna að blekkja okkur í daglegu lífi. Við fylgjum bara fjöldanum. Ég held að sagan hefði verið mun betri dæmisaga ef keisarinn hefði komið fram nakinn og ekki áttað sig á því og allir hefðu látið sem hann væri í fallegum fötum.

Takk fyrir að minna mig á Víðsjá umfjöllun þína Sigga. Mér finnst nálgun þín á myndina skemmtileg. Ég þurfti að sjá Mulholland Dr. tvisvar til að skilja hana og Lost Highway 3X. Ég held að maður þurfi að sjá INLAND EMPIRE oftar en einu sinni til að átta sig á öllu sem er að gerast. Reyndar átti ég von á því frá upphafi og leyfði mér því bara að njóta stemningarinnar, hljóðrásarinnar og myndatökunnar í fyrstu atrennu. Leyfði mér að tínast í þessum undurfallega og furðulega heimi.

Árni Svanur @ 9/8/2007 13.17

Það ber að horfa á hverja mynd í það minnsta þrisvar ;)

Ps. Þessi fíni pistill hefur líka ratað á nýja Deus ex cinema vefinn.

Ólöf I. Davíðsdóttir @ 9/8/2007 15.29

Í anda þeirrar túlkunar sögunnar sem þú tilgreinir að hún fjalli um að fylgja eigin sannfæringu verð ég að segja að sannfæring mín um merkingu sögunnar sé önnur en þessi. Í mínum huga fjallar sagan um þá regin skissu að gangast ekki við mistökum sínum til að halda andlitinu sem stafar af uppblásinni hégómagirni, jafnvel þó mistökin séu öllum augljós. Mistökin verða þá á endanum allsherjar afhjúpun. Aðrir sem spila með eru undir sömu sök seldir.
Að segja að listaverk sé eins og nýju fötin keisarans skil ég svo að það sé ekki þeirrar athygli vert sem það fær. Gagnrýnin beinist þá að þeim sem upphefja verkið. Ekki finnst mér rétt að fullyrða að listmaðurinn sé að blekkja þá sem nálgast verkið. Væri tilgangurinn að blekkja þá væri blekking hluti verksins og sem hluti þess væri blekkingin sjálf verðug umfjöllunar og úrvinnslu m.t.t.þ. hvers henni er ætlað að áorka sem hluti verksins.

Þorkell @ 9/8/2007 20.29

Mér finnst túlkun þín á sögunni flott Ólöf en ég velti því fyrir mér hve margir túlki hana þannig. Gaman væri að gera móttökurannsóknir á henni til að ganga úr skugga um það. Í raun væri það mjög áhugavert rannsóknarverkefni og mætti vel taka fleiri slíkar sögur fyrir.


© þorkell.annáll.is · Færslur · Ummæli